Opinn fundur um reglur um uppreist æru - bein útsending
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd heldur opinn fund um reglur um uppreist æru þriðjudaginn 19. september kl. 10. Gestur fundarins er dómsmálaráðherra, Sigríður Á. Andersen.
Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.
Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone.
Fundurinn verður haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis.